Rannsóknastofan Lífshættir barna og ungmenna var stofnuð árið 2006 og er rannsókna- og fræðslusetur sem heyrir undir Menntavísindastofnun. Forstöðumaður stofunnar er Sigrún Aðalbjarnardóttir prófessor í uppeldis- og menntunarfræðum en jafnframt starfa þar átta starfsmenn á hinum ýmsu fræðasviðum sem varða þroska og lífshætti barna og ungmenna.
Rannsóknastofan stendur að margvíslegu rannsóknastarfi bæði hérlendis og erlendis á fræðasviðum sem lúta meðal annars að samskiptum, menntun, áhættuhegðun, seiglu, borgaravitund, gildismati, stöðu ungmenna af erlendum uppruna og lífssýn barna og ungs fólks. Jafnframt er fengist við rannsóknir á uppeldisháttum sem styðja við velferð og heilbrigða lífshætti barna og ungmenna. Stofan leggur áherslu á að birta rannsóknaniðurstöður í ritrýndum tímaritum og á fræðilegum vettvangi en jafnframt er lögð áhersla á samstarf við fagfólk á vettvangi og að miðla rannsóknaniðurstöðum til þeirra.
Í því skyni eru starfsmenn virkir þátttakendur í ráðstefnum en eiga jafnframt frumkvæði að því að skipuleggja ráðstefnur, námskeið og aðra viðburði sem styðja við starf og rannsóknir á sviðinu. Loks hvetur rannsóknastofan efnilega MA og doktorsnema til rannsókna á sviðinu og leggur áherslu í því skyni á að veita ráðgjöf og skapa þeim tækifæri.
Hafðu samband:
Tölvupóstur: sa@hi.is
Vinnusími: 525-4515